2002-2009 Ultra.is. All rights reserved.
Reynslusögur
Vöðvabólga
Fór bæði til grenningar og líka til að losna við vöðvabólgu.
Hef misst ótrúlega marga sentimetra, en það sem ég er ánægðust með, er hvernig þetta vinnur á vöðvabólgu.
Var búin að vera með hausverk í viku vegna vöðvabólgu í öxlunum.
Fór í einn tíma í Ultratone og vöðvabólgan snar minnkaði og hausverkurinn að sjáfsögðu hvarf og eftir tvo tíma í Ultratone fór vöðvabólgan alveg.
Ágústa Ósk
Mín reynsla af Ultratone er mjög góð.
Var með vöðvabólgu og gigt og finn að Ultratone er að virka mjög vel fyrir mig
Hafdís M. Magnúsdóttir
Mín reynsla af Ultratone Faxafeni er frábær.
Sérstaklega er nuddið við vövabólgu frábært og ég mæli með því.
Starfsfólkið er þólinmótt og yndislegt - hlýlegur staður.
Rannveig Sig.
Ég er gigtarsjúklingur og er þar að auki með slæma vövabólgu í herðum og öxlum.
Sú meðferð, sem Ultratone Faxafeni hefur boðið mér upp á hefur gert það að verkum að mér líður betur og ég hef meira starfsþrek.
Ég finn sérstaklega muninn eftir helgar þegar ég hef verið að vinna en stofan verið af eðlilegum ástæðum verið lokuð
Sigurður Árnason
Grenning og styrking
Virkar tvímælalaust! Losar mann á fljótan hátt við umfram fitu.
Ég hef gengið með fimm börn og ég finn árangur á maganum.
Ég er með stinnari húð og sléttari maga.
Frábær uppfinning!
Þorgerður Á Hanssen
Alveg frábær tækni.
Grennir, styrkir og er betra en verkjatöflur.
Óttar Halldórsson
Jákvæð þróun með Ultratone. Vöðvar á magasvæði eru að koma fram og húðin hefur strekkst.
Vökvasöfnun er alveg horfin.
Hef verið í líkamsrækt í tvö ár en þessi aðferð er skjótvirkari.
Árangurinn kemur fljótt fram og sést greinilega.
Held áfram í þessari meðferð.
Björn Valdimarsson
Ég er á þriðja kortinu og ég sé mun á húðinni og mér finnst ég hafa styrkst mikið, og svo má ekki gleyma þeim sentimetrum sem hafa fokið.
Það er kostur. Ultratone er fín meðferð með annarri hreyfingu.
Ing. Þorsteinsdóttir
Fótapirringur
Í haust byrjaði ég í Ultratone, aðallega vegna forvitni.
Mér til mikillar ánægu fór ég fljótlega að taka eftir því að fótapirringur, sem ég hafði lengi þjáðst illa af, hafði snarminnkað!
Ég fann það mikinn mun, að ég gat setið kyrr og sofið vel á nóttunni, án þess að hafa sífellt þörf fyrir að hreyfa og hrista fætur vegna óþæginda í fótleggjum.
Núna fer ég reglulega í Ultratone til að viðhalda betri líðan. Þar er ávallt tekið vel á móti mér og andrúmsloftið er þægilegt.
Ef ég er að ferðast mikið, t.d. í flugvél eða bíl, fer ég í Ultratone í nokkra daga áður og þá er ég í góðum málum, laus við öll óþægindi og nýt þess betur að ferðast!
Íris Ingvarsdóttir