2002-2009 Ultra.is. All rights reserved.
Heim   Um Ultratone Póstur                    
Veldu það sem hentar þér

Valkostir fyrir andlit til að ná fram unglegra útliti

1. "Andlitslyfting" -- Non Surgical Facelift

Þessi samþjappaða meðferð sameinar þéttingu húðarinnar og lyftingu vöðvanna til að strekkja og þétta útlínur andlitsins. Andlitsvöðvarnir þjálfast og lyftast, það dregur úr rákum, slöpp húð og vöðvar styrkjast og andlitið fær unglegra útlit.


2. Styrking grunnvöðva andlitsins -- Deep Muscle Tone

Stundum hefur slaknað um of á húðinni og vöðvunum í andlitinu og pokar og fellingar myndast. Þessi meðferð sendir örvunarboð í grunnvöðva andlitsins, sem veldur því að það strekkist mjúklega á þeim og þeir lyftast og styrkjast. Þetta gefur unglegra útlit .


3. Styrking húðarinnar -- Skin Tone

Þegar vöðvunum hefur verið lyft og þeir styrktir er mikilvægt að styrkja húðina. Þessi meðferð eykur framleiðslu á "elastin" og "collagen", sem hjálpar til við að þétta húðina og veita henni teigjanleika.


4. Bjúglosun -- Lymphatic Drainage

Hin lága tíðni sem notuð er í þessari meðferð nuddar andlitsvöðvana mjúklega og örvar sogæðakerfið til að draga úr bjúg og losa út úrgagnsefni. Þetta er rétta meðferðin til að hjálpa húðinni að hreinsa sig og gefur frísklegra útlit.


5. Dregið úr hrukkum -- Wrinkle Reduction

Þessi meðferð notar mörg mismunandi örvunarboð til að endurnæra húðina, vöðvana og hina ýmsu tengivefi. Hún bætir einnig blóðflæði í háræðum og dregur úr fínum rákum í andliti. Þetta er rétta meðferðin eldra fók, sem þarf langtíma endurnýjum og styrkingu.


6. Blóðflæði -- Circulation

Þessi milda meðferð er hönnuð til að auka blóðflæði og styrkja háræðarnar. Hún sléttar úr húðinni og hjálpar til við að yngja upp útlitið.


7. Nudd til að bæta rakastig húðarinnar -- Hydrating Massage

Þessi meðferð er hönnuð til að losa þreytu og streitu úr andlitinu. Notuð eru mild og róandi örvunarboð til að slaka á og endurnæra þreytta húð og andlitsvöðva. Einnig losar þessi meðferð um sæluboðefni (endorfín) og eykur þar með vellíðan.


8. Viðhald á árangri -- Maintenance

Þegar fullum árangri hefur verið náð er þessi meðferð notuð. Þessi samþjappaða meðferð fer í gegnum öll þau örvunarboð, sem tilheyra hinum sértækari meðferðum.




Andlitsmeðferð

ULTRATONE Futura Pro tækið gefur kost á átta mismunandi andlitsmeðferðum.

Meðferðirnar eru mismunandi eftir því hvort um er að ræða karl eða konu.

Einnig eru rafboðin valin þannig að þau henti húðgerð viðskiptavinarins.

Andlitsmeðferðir eru venjulega 15 mínútur að lengd.
Andlits meðferð með Ultraton tækjum frískar upp og gefur unglegra útlit
Skjótur árangur fyrir andlit og líkama
Slakaðu á meðan tækið vinnur
S.588-1166    694-4640